4.4.2007 | 22:01
Til hamingju Stjarnan
Þar sem ég var á leik Hauka og Keflavíkur í úrslitum Iceland Expressdeildar kvenna þá gat ég verið í Kennó áðan þegar Stjarnan sigraði Val um laust sæti í Iceland Expressdeildinni næsta tímabil. Ég óska Stjörnunni og Garðbæingum til hamingju með að vera kominn í hóp þeirra best í karlakörfunni. Stjörnumenn ætla sér örugglega að vera í deild þeirra bestu um ókomin ár og verður gaman að fylgjast með körfunni í Garðabænum á næstu árum. Stjarnan var síðast í efstu deild keppnistímabilið 2001/2002
Stjarnan vann sér sæti í úrvalsdeildinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Til Hamingju Stjörnumenn. Þetta huggar okkur hér fyrir vestan að þið fóruð alla leið. Þið eruð vel að þessu komnir. Tökum ykkur í bikarnum á næsta tímabili
Kveðja frá Ísafirði.
Ingólfur H Þorleifsson, 4.4.2007 kl. 23:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.