14.6.2007 | 09:06
Sjóvá-Kvennahlaup ÍSÍ
Á laugardaginn næsta fer fram hið árlega Kvennahlaup , aðal hlaupastaðurinn er Garðabær en ég held að það sé hægt að hlaupa á hátt í 90 stöðum hér á landi og svo 10-15 stöðum erlendis. Það var í kringum 1990 sem fyrsta kvennahlaupið fór fram og hefur hlaupið alltaf verið fjölmennara og fjölmennara. ÍSÍ og Sjóvá hafa stutt við bakið á ýmsum málefnum tengdum hlaupinu og núna er áherlsan lögð á hjartavernd en hlaupið verður þetta árið undir kjörorðinu " Hreyfing er hjartans mál" Ég hvet allar konur til þess að taka þátt í þessu degi, koma saman og hafa gaman. Hægt er að kynna sér hlaupið nánar hér
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.