30.4.2007 | 14:41
ekki hættur að blogga - tók smá frí
Þar sem mjög mikið hefur verið að gera undanfarið hjá okkur í fyrirtækjaþjónustu Office1 sem og störfum mínum sem formaður KKÍ þá hef ekki haft neinn tíma til þess að blogga hér og tjá skoðanir mínar - allur tíminn farið í vinnuna. Ég ætla að reyna að taka á mig og setja eitthvað niður blað sem mun birtast hér á næstu dögum. Það er gaman að sjá hversu margir hafa samt verið að kíkja á síðuna reglulgega og þakka ég þeim fyrir þolinmæðina á meðan ég setti ekkert hér inn. En nú verður breyting á og seinna í dag mun ég setja smá pistil hér inn um lokahóf okkar körfuboltamanna sem haldið var á laugardaginn og tókst frábærlega......
Athugasemdir
Ég bíð spenntur. Og býð þér jafnframt að blanda þér í umræðuna um xD á blogginu mínu :) Funheitt stöff.
Magnús Már Guðmundsson, 30.4.2007 kl. 15:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.