hefði vilja sjá meir um íþróttir barna

Ég var að lesa yfir þessa aðgerðaráætlun í málefnum barna og barnafólks sem Samfylkingin var að kynna. Þetta er að mörgu leyti ágætis plagg  og gott að fá það í umræðuna en ég verð að viðurkenna að ég hefði viljað sjá mun meiri áherslu lagðar á þróttir barna og unglinga í þessari áætlun.

Það er minnst á íþróttir á tveim stöðum í þessu plaggi , það er minnst á að tryggja skuli öllum börnum þátt í íþrótta-æskulýðs og tomstundastarf og svo er talað um að tryggja skuli aðgang barna og unglinga að tónlistarnámi, íþrótta og tómstundastarfsemi.

Þetta er nú voða klassískt orðað og oft hefur maður séð svipað orðalag hjá flestum stjórnmálaflokkum - ég sé því ekkert nýtt koma fram hjá Samfylkingunni um íþróttir barna og unglinga.  Hvenig ætlar Samfylkingin t.d.  að tryggja öllum börnum þátt í íþróttastarfsemi??


mbl.is Samfylkingin kynnir aðgerðaáætlun í málefnum barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Gautur maður leiksins

Mér varð ekki að ósk minni þegar ég bloggaði í hálfleiknum í kvöld - það voru því miður Spánverjar sem náðu að læða inn marki en ekki við. Okkar menn  þurftu að verjast mikið í leiknum og gerðu það vel næstum allan leikinn og því miður náðu Spánverjar að skora.   Tap er aldrei ásættanlegt en okkar með börðust  vel og eiga hrós skilið fyrir það, en svona fór þetta í kvöld.


óviðunandi leikaðstæður

Þetta eru ótrúlegar leikaðstæður sem leikmennirnir þurfa að spila við kvöld og ekki öfunda ég þá af því að spila fótbolta í þessaru miklu bleytu.   Árni Gautur búinn að standa sig mjög vel í markinu , núna er bara að halda áfram svona í seinnihálfleik halda markinu okkar hreinu og læða boltanum inn í mark Spánverja og stigin 3 verða okkar Smile   
mbl.is Spánverjar sigruðu Íslendinga 1:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Akstursíþróttir

Ein er sú íþróttagrein sem ég hef orðið svo "frægur" fyrir að vinna Íslandsmeistartitil í en það var í rally sumarið 2002. Ég var aðstoðarökumaður hjá Hlöðveri Baldurssyni og urðum við tvöfaldir Íslandsmeistarar, sigruðum í einsdrifsflokknum og nýliðaflokknum, og urðum í 2.sæti yfir heildina til Íslandsmeistara. Rally er alveg frábær íþrótt sem er mjög vinsæl út í hinum stóra heimi og mætti njóta meiri vinsælda hér á landi ásamt öðrum akstursíþróttum  en því miður þá hefur mér fundist stórlega vanta samstöðu undanfarin ár  allra þeirra sem koma að þessari frábæru íþrótt. 

Sé það einlægur vilji allra í akstursíþróttaheiminum hér á Íslandi að fá sig viðkennda hjá ÍSÍ og íþrótthreyfingunni þá þarf hugarfarsbreytingu - ekki vera alltaf fúlir og öfundsjúkir  úti í aðrar íþróttagreinar sem  mér finnst ég alltof oft heyra hjá þeim sem stunda aksturíþróttir.  Menn kvarta og kveina að allir aðrir en þeir fái athygli fjölmiðlanna en hvað er LÍA t.d að gera í því að koma íþróttinni á framfæri?? Það á að takast á, á sérleiðunum og í þeim keppnum sem fram fara en útá við þá eiga allir að standa saman að því að gera veg þessar íþróttagreinar sem mestan og bestan. Menn þurfa að leggja persónulegan ágreining til hliðar og horfa fram á veginn, annars næst enginn árangur í þessum málum og aksursíþróttir verða í sama farinu næstu árin.  

Góðar fréttir fyrir skíðafólkið

Það eru góðar fréttir að hægt sé að skíða í Bláfjöllunum þessa dagana. Ég hef reyndar ekki farið á skíði í mörg ár en það eru margir sem vilja stunda þessa skemmtilegu íþrótt og einnig njóta útiverunnar, ég vona fyrir hönd skíðaáhugafólks að snjórinn verði sem lengst í Bláfjöllum.


mbl.is Brunað niður brekkurnar í góðu skíðafæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikskólalokanir á sumrin

Eitt af því sem ég hef ekki verið ánægður með eru þessar lokanir leikskólana á sumrin. Leikskólarnir eru farnir að stjórna því hvenær fjölskyldur þessa lands taka sumarfrí og til þess að gera þetta öllum ennþá erfiðara þá loka næstum allir leikskólarnir á sama tíma tvær vikur í júlí. Þetta er algjörlega út í hött og þetta gerir það að verkum að vinnufélagar eru farnir að rífast um sumarfríin og vinnuveitendur þurfa að gera á milli manna og hvað þá  - jú allir verða óánægðir.

Það er sjálfsagt mál að taka 4vikna sumarfrí eins gert er í dag en ég vil fá að ráða því hvenær það sumarfrí er, því eins og þetta er núna þá er þetta ekki fjölskylduvænt umhverfi sem okkur er boðið uppá.  Ég bara get ekki skilið afhverju ég ræð því ekki hvenær sonur minn fer í sumarfrí og við fjölskyldan, núna lítur út fyrir að við  munum ná öll saman 2 vikur  frí er það fjölskyduvænt!!!! Ég geri mér grein fyrir því að leikskólakennarar og starfsmenn leikskólanna þurfi sitt sumarfrí og þeir vilja örugglega ráða því svolítð einnig því væntanlega á stór hluti starfsmanna leikskólanna sínar fjölskyldur.  Við munum ekki gert sömu kröfur um menntun og uppeldi barna okkar yfir sumartímann þar sem sumarafleysingamenn munu sinna börnum okkar og fyrir mitt leyti þá er það ekkert mál enda börnin meiri partinn yfir sumartímann úti að leika á leikskólanum.

Ég hvet sveitarstjórnarmenn og leikskólastjórnendur til þess að skoða þessi mál alvarlega og gera breytingar á þessum málum þannig að fjölskyldur þessa lands geti farið saman í sumarfrí og ráðið sínum frítíma sjálf. 


Góðar fréttir

Þetta eru góðar fréttir fyrir okkur í íþróttahreyfingunni,  þetta verið í  vinnslu í nokkur ár og loksins orðið að veruleika og er það frábært framtak hjá ríksstjórninni að stíga þetta skref. Þorgerður Katrín menntamálaráðherra hefur sýnt íþróttahreyfingunni mikinn skilning og hafa fjárframlög til íþróttamála aukist verulega í hennar ráðherratíð.  En ég vil sjá miklu meira framlag koma frá ríkisvaldinu og ég hef trú á því að svo eigi eftir að vera í nánustu framtíð, því meira framlag til íþróttahreyfingarinnar mun skila betri einstaklingum út í samfélagið eins og Þórdís Gísladóttir greindi frá á fundi hjá ÍSÍ á föstudaginn síðasta  .


mbl.is 90 milljónir settar í ferðasjóð íþróttafélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Iceland Express skot í NBA :-)

Þegar ég heyrði af þessu skoti í NBA í nótt þá var mér hugsað til borgarleiksins sem Iceland Express hefur staðið fyrir undanfarið  í úrslitakeppni Iceland Expressdeildanna þar sem fjórir einstaklingar geta unnið sér inn ferð til einhverja af áfangastöðum   Iceland Express.  Núna hafa nokkrir einstaklingar unnið sér inn ferðir m.a. til Eindhoven, Friedricshaven, Basel og Parísar.  Tveir af þeim sem hafa unnið sér inn ferð skutu FRÁ MIÐJU en það eru þeir Leifur og Steinar
mbl.is NBA: Jafnaði af 20 metra færi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ótrúleg umferð

Þar sem ég bý í Grafarvoginum þá er ég orðinn vanur því að vera í nokkun tíma að koma mér í vinnuna í Skútuvoginn en þetta sló allt út í morgun. Ég var í 40 mínútur á leiðinni!!!!  ótrúlegt hvað umferðin gekkk hægt - og maður var orðinn nokkuð  pirraður þegar maður loksins komst í vinnuna. En ég er að vinna með svo skemmtilegu fólki að eftir einn kaffibolla og smá spjall þá var góða skapið komið aftur :-)


mbl.is Umferð enn mjög þung á höfuðborgarsvæðinu vegna hálku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

var þetta ekki bara allt í lagi

Spaugstofumenn hafa gert grín að allflestu í íslensku þjóðlífi og m.a. af forseta okkar og öðrum framámönnum og svo verða allmargir ósáttir  þegar þeir setja nýjan texta við lag þjóðsöngs okkar.   Ég get skilið bæði sjónarmiðin í þessu máli og ég hallst nú frekar að því að þeir hefðu átt að sleppa þessu atriði sínu.

En það sem mig langaði koma frá mér um þjóðsönginn er það hvað okkar ágæti þjóðsöngur er langur, ég hef verið viðstaddur marga atburði í körfuboltanum þegar verið er að spila þjóðsöngva og ég verð að segja að "styttri" útgáfa okkar af þjóðsöngum er alltof löng. Það eru allir farnir að geispa og hálfsofnaðir þegar loksins okkar þjóðsöngur er búinn. Hvað er hægt að gera í þessu?? Ég vil alls ekki fara útí þá umræðu að skipta um þjóðsöng því þjóðasöngur okkar er mjög góður og við eigum að vera stolt af honum en þurfum að athuga lengd hans eins og við íþróttaatburði.  


mbl.is Spaugstofumenn brutu lög um þjóðsönginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband