Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Fjölskyldudagurinn langi

Dagurinn í dag hefur verið hreint út sagt frábær og litla fjölskyldan úr Grarfarvoginum hefur  nýtt daginn vel í það vera saman.  Það er nauðsynlegt að fá einn og einn dag eins og föstudaginn langa þar sem næstum allt er lokað og fjölskyldan nýtur þess að vera saman og gerir ekkert annað – því miður er of algengt að maður freistist til að kíkja í Smáralindina, Kringluna , á Laugaveginn og svo mætti lengi telja. En eins og í dag þá bara var það ekki hægt – föstudagurinn langi er því í raun fjölskyldudagurinn langi  

Það hefur verið mjög mikið að gera hjá mér í allan vetur  og  það er hægt að telja á fingrum annarar handar þá heilu frídaga sem við höfum náð saman frá jólum. Þetta var því kærkomin dagur fyrir okkur og í raun nauðsynlegt er fá svona frábæran frídag.

Ég er því mjög glaður og sáttur við föstudaginn  langa  eins og hann er  í okkar þjóðfélagi og hlakka til að halda áfram í fyrramálið að nýta tíman eins og hægt er með fjölskyldunni t.d. er ég búinn að lofa því að fara með guttanum út í körfubolta.


Flott grein og myndir hjá Snorra Erni

Félagi minn Snorri Örn Arnaldsson skrifar skemmtilega bloggfærslu um leik KR-inga og Snæfells í gærkvöldi, þar er einnig að finna myndir frá leiknum og m.a. af ævintýralegu skoti Brynjars Björnssonar sem skoraði 3.stiga körfu á lokasekúndu venjulegs leiktíma og tryggði KR framlengingu í leiknum. Einnig er hægt að fara inna á myndasíðu Snorra í þessari sömu bloggfærslu  en hann hefur verið mjög duglegur við að taka myndir af hinum ýmsu atburðum körfuboltans undanfarið ár.


þvílíkur leikur

Það verður að segjast alveg eins og er að leikurinn í Vesturbænum í kvöld var hin besta skemmtun og bauð uppá allt það sem körfuboltinn getur boðið uppá -  því miður varð annað liðið að detta út úr keppninni og ég fann verulega til með Snæfellingum því þeir voru svo sannarlega nálægt því að sigra.   

Ég held að það hafi ekki farið á milli mála í kvöld úrslitakeppnin okkar þetta árð  í Iceland Expressdeild karla er einhver sú besta skemmtun sem boðið hefur verið uppá í íslensku íþróttalífi undanfarin ár. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka Snæfellingum og Grindvíkingum fyrir þeirra stóra þátt í því að allstaðar þar sem maður kemur þá er fólk að ræða um körfuboltann og allir hafa skoðun á honum - það er bara GAMAN.  Núna tekur við eingvígi á milli Njarðvíkinga og KR-inga um það hvort liðið muni hampa Íslandsmeistaratitlinum síðar í þessum mánuði og mig er farið að hlakka verurlega til að fylgjast með því einvígi. ÁFRAM KÖRFUBOLTI.....


mbl.is KR í úrslit eftir sigur á Snæfelli í framlengdum leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

skemmtileg lesning

Í kvöld fara fram oddaleikirnir i undanúrslitum Iceland Express deildar karla og verður mikið fjör á báðum leikstöðum. Eins og ég hef sagt áður hér þá eru mörg félög sem leggja mikinn metnað í fréttaflutning á  heimasíðum sínum í körfunni. Núna er spennan farin að magnast upp fyrir kvöldið og gaman hefur verið að fylgjast með heimasíðum félaganna í gær og í dag, hérna er linkur inná þessar síður félaganna sem berjast munu í kvöld um að leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla þetta vorið. 


frekar skrítið

Ég skil vel að stjórnmálafokkarnir séu að berjast við að fjármagna kosningabaráttu sína um þessar mundir og reyni með öllum ráðum að safna peningum.  

Mér finnst samt frekar skrítið að VG biðji Alcan um að fjármagna hlut í kosningabaráttu sinni  og mjög "ótaktískt" hjá Vinstri grænum að gera þetta. VG hefur barist mjög hart gegn álversframkvæmdum og mjög margir aðilar innan VG börðust mjög hart gegn stækkun álvers í Hafnarfirði þar sem Alacan tapaði miklu fjármagni á því hvernig þær kosningar fóru. Svo koma fulltrúar VG og biðja Alcan um pening....mér finnst það frekar skrítið og í raun þá er ég hissa á Vinstri grænum að gera þetta. 


mbl.is VG óskuðu eftir fjárstuðningi Alcan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fróðlegt

Það er alltaf gaman að velta þessum blessuðu skoðanakönnunum fyrir sér og sérstaklega þegar aðeins rétt mánuður er til alþingiskosninga og fjörið að fara að ná hámarki.

Það er ánægjulegt að sjá Sjálfstæðisflokkinn eins sterkan og hann er nú og greinilegt að stór hluti landsmanna vill sjá þennan öfluga flokk áfram við landsstjórnina. VG enn  stærri en Samfylkingin og það sem meira er að þessir "stóru" vinstri flokkar eru saman jafnstórir og Sjálfstæðisflokkurinn og það hlýtur að vera áhygjuefni fyrir vinstri menn þegar svo stutt er til kosninga. Að vísu held ég að Samfylkingin eigi eftir að sækja dálítið á og muni að lokum verða talsvert stærri en VG. Fylgi Framsóknar kemur ekkert á óvart og ekkert nýtt þar á ferð. Ég veit satt best að segja ekki alveg hvað verður um Frjálslynda  en ætli þeir muni ekki ná 3-4 þingmönnum á lokasprettinum en Íslandshreyfingin er að mínu mati ekki nógu sterkt til að koma manni að á þing.

En þetta eru nú allt bara óvísndalegar pælingar á skírdagsmorgni hjá mér og fróðlegt verður að fylgjast með kosningabaráttunni áfram. Ég hef ávallt stutt Sjálfstæðisflokkinn  en ég mun ekki gera upp hug minn fyrr en ég sé afstöðu allra stjórnmálaflokkana til íþróttamálana og bíð spenntur eftir þeim svörum.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur með rúm 40% og VG með 21%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

flott á Ásvöllum í gær

Mig langar að hrósa stjórn körfuknattleiksdeildar Hauka fyrir flotta athöfn í hálfleik á leik Hauka og Keflvíkur í úrslitum Iceland Expressdeild kvenna. Ljósin voru slökkt í íþróttahúsinu og nýkrýndir Íslandsmeistarar Hauka í MB10ára drengja voru kallaðir fram og fékk hver leikmaður páskaegg frá Góu að gjöf frá deildinni. Stundum gleymist það  að gera vel fyrir yngri iðkendurnar,  þetta var mjög skemmtilega framsett hja Haukafólki í gærkvöldi. Hérna er hægt að sjá mynd af Íslandsmeisturum Hauka í MB10 ára drengja


karfan.is

ég hvet alla íþróttaáhugamenn til að skoða mjög góðan vef sem fjallar um körfuknattleikinn vídd og breidd en það er karfan.is.  Jón Björn og hans félagar  eiga heiður skilið fyrir frábæra og vel unna heimasíðu.


Dagbjört fékk ferð til Stokkhólms

Borgarskot Iceland Express hefur tekist mjög vel í úrslitakeppnum Iceland Expressdeildanna og nú í kvöld á leik Hauka og Keflavíkur vann Dagbjört Leifsdóttir sér inn ferð fyrir tvo til Stokkhólms með því að hitta úr 3.stiga skoti sínu. Á hverjum leik í úrslitakeppnum Iceland Expressdeildanna fá einstaklingar að reyna sig á Borgarskotinu og geta unnið ferð til einhverns af áfangastöðum Iceland Express. Dagbjört er níunda í röð sigurvegara í Borgarskotleiknum - frábært framtak hjá Iceland Express 


mbl.is Haukar unnu Keflavík í fyrsta leiknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Stjarnan

Þar sem ég var á leik Hauka og Keflavíkur í úrslitum Iceland Expressdeildar kvenna þá gat ég verið í Kennó áðan  þegar Stjarnan sigraði Val um laust sæti í Iceland Expressdeildinni næsta tímabil. Ég óska Stjörnunni og Garðbæingum til hamingju með að vera kominn í hóp þeirra best í karlakörfunni. Stjörnumenn ætla sér örugglega  að vera í deild þeirra bestu um ókomin ár og verður gaman að fylgjast með körfunni í Garðabænum á næstu árum. Stjarnan var síðast  í efstu deild keppnistímabilið 2001/2002 


mbl.is Stjarnan vann sér sæti í úrvalsdeildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband